Beint á leiðarkerfi vefsins

Aðgengi fyrir alla

Aðgengi fyrir alla

Outcome hugbúnaður hefur markað sér sérstaka stefnu í hönnun og uppsetningu vefja sem snýr að því að tryggja aðgengi fyrir alla. Með þessu er fólki sem býr við sjónskerðingu eða annarskonar lestrarörðuleika gefið tækifæri að nálgast efnistök vefja með þægilegri hætti en ella.

  • Sérþarfir
    Outcome hefur lagt mikið upp úr aðgengi fyrir alla, óháð getu notandans. Vefir í Outcome Vefstjóranum eru settir upp þannig að lesvafrar sem blindir notendur nota, eiga auðvelt með að lesa vefina. Aðaldálkur vefsins, þar sem mikilvægasta efnið er, kemur fyrstur þannig að lesvafrar byrja strax að lesa það efni. Það er svo flýtileið í leiðarkerfi efst vilji notendur lesvafrans sleppa því að lesa efni viðkomandi síðu og halda áfram að skoða vefinn.
  • CSS stílblöð
    Allt útlit í Outcome Vefstjóranum er sett upp með CSS-stílblöðum sem gerir aðskilnað útlits og virkni algjöran. Þannig er auðvelt að birta vefinn fyrir mismunandi tæki með mismunandi útliti, s.s. fyrir síma, lesvafra o.s.frv.
  • Auðlestrarhamur
    Með Outcome Vefstjóranum fylgir auðlestrahamur sem notendur með lestrarörðugleika geta nýtt sér, þar er hægt að stjórna því sem næst öllu sem snýr að texta vefsins. Meðal þess sem hægt er að stjórna er stærð leturs, gerð leturs, línubili, lit leturs, lit á sérhljóðum í letri, bakgrunni vefsins o.fl.
  • Stækkun leturs
    Með Outcome Vefstjóranum fylgir virkni til að stækka og minnka letur og einnig er það tryggt að notendur geti ráðið letur stærð á vefnum í gegnum þann vafra sem þeir nota.
  • Læsilegar vefslóðir
    Allar vefslóðir í Outcome Vefstjóranum eru á læsilegu formi. í stað slóða eins og www.len.is/sida.asp?id=323&sessionid=3F2504E0-4F89-11D3-9A0C-0305E82C3301 eru slóðirnar www.len.is/um-okkur/. Með því að hafa læsilegar vefslóðir verður auðveldara fyrir notendur að átta sig á efni síðunnar sem um ræðir sem og leitarorð fyrir leitarvélar eru þá líka komin í slóð síðunnar.

Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.

Vörur

Umsagnir

„Lipurt og hjálpsamt starfsfólk"

Sigrún Ingimarsdóttir
Verkefnastjóri - LSH


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Outcome vefstjóri vandaðir vefir byggðir á öflugu en einföldu vefumsjónarkerfi