Beint á leiðarkerfi vefsins

Leitarvélabestun (SEO)

Rannsóknir hafa sýnt fram á að flestir finna það sem þeir leita að á netinu með hjálp leitarvéla eins og google, yahoo og Bing (Windows Live Search). Mikilvægt er því að efnisskrif á vefsíðum taki mið af því að þess konar leitarvélar finni vefsíðurnar og það efni sem þær geyma. Hér eru nokkrir punktar sem vert er að hafa í huga í þessum efnum:

  • Byrjið á því að slá upp nafni fyrirtækis ykkar í leitarvél eins og t.d. Google til þess að sjá hvar í röðinni ykkar fyrirtæki er.
  • Prófið næst að slá upp þeirri vöru eða þjónustu sem þið viljið koma á framfæri.
  • Ef þið eru ósátt við það sæti sem þið komið upp í báðum eða öðru tilfellinu skulu þið næst taka ákvörðun um það hvað það er sem þið viljið helst koma á framfæri, nafni fyrirtækis, vöru, þjónustu eða öðrum upplýsingum.
  • Það mikilvægasta í ferlinu er svo að skrifa skýran og skorinorðan texta. Viðskiptavinirnir eða notendur vefsíðunnar eiga að finna fljótt og örugglega það sem þeir leita að og ekki þurfa að leita í textanum að kjarna hans.
  • Síðast en ekki síst skal ávallt hafa í huga að auðvelda Google og öðrum leitarvélum að finna þau orð sem viðskiptavinirnir eiga að finna. Það er gert m.a. með því að láta orðin koma oft fyrir í textanum.
  • Ávallt skal þó hafa í huga að fyrst og fremst er verið að skrifa fyrir lesendur og í annan stað fyrir leitarvélar. Þannig má textinn ekki vera of þéttur af lykilsetningum og orðum. Til eru þumalputtareglur í þessum efnum og eru starfsmenn Outcome sínum viðskiptavinum innan handar í þeim efnum.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.

Vörur

Umsagnir

„Við gefum þeim okkar bestu meðmæli"

Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Attentus


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið