Beint á leiðarkerfi vefsins

Persónuvernd

Við útsendingu fréttabréfa safnast saman upplýsingar um hegðun viðtakenda s.s. hvort hann las bréfið, hvenær, hvað las hann o.s.frv... Þau gögn eru vistuð hjá Outcome hugbúnaði ásamt upplýsingum um póstlista og eldri fréttabréf. Því er mikilvægt að öryggi þessa ganga sé tryggt m.t.t. til aðgengis og laga um persónuvernd.

Hver notandi Outcome fréttabréfakerfisins fær sérstakt notandanafn og lykilorð inn á sitt eigið kerfi þar sem hann sjálfur stýrir aðgangi og hefur umsjón með sínum póstlistum og fréttabréfum. Tryggt er að enginn nema notandinn sjálfur komist inn á hans vefsvæði.

Öryggi gagna viðskiptavina okkar hefur frá upphafi verið forgangsatriði og taka öryggiskröfur mið af því. Vefþjónninn sem Outcome fréttabréfakerfið sendir frá er staðsettur í sérhönnuðu húsnæði þar sem aðgangsstýring og innbrotavarnir eru með því besta sem gerist. Aðgangi að tölvuverum er stýrt með sérstökum kerfum og öll umferð skráð.

Kerfið er afritað með skömmu millibili til að lágmarka hugsanlegt gagnatap ef um alvarlega vélbúnaðarbilun er að ræða. Afrit eru einnig færð af staðnum í bankahólf reglulega.

Allir starfsmenn Outcome hafa skrifað undir þagnarneyð og stranga skilmála um notkun viðkvæmra persónuupplýsinga.


Næstu skref

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Komdu í heimsókn

Við tökum vel á móti þér á skrifstofu okkar að Bíldshöfða 18.

Það er opið hjá okkur frá kl. 9.00 á morgnana til kl. 17.00 síðdegis.

Umsagnir

„Greiðvirk og frábær þjónusta"

Elísabet Hjaltadóttir
Actavis Group hf

Meðal viðskiptavina


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta

English information

Information in english
Kynntu þér Outcome kannanakerfið